Hefðbundnar birtingar
Við hjá Salt vitum að hefðbundnar birtingar skipta enn öllu máli
Áratuga reynsla í birtingastrategíum
Við hjá Salt vitum að hefðbundnar birtingar – eins og sjónvarp, útvarp, prent og útimiðlar – skipta enn máli þegar ná þarf breiðum hóp með áhrifaríkum hætti. Við sjáum um alla skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni.
Með áratuga reynslu í birtingastefnumótun tryggjum við að þú fáir rétt pláss, á réttum tíma – á besta verði. Við vinnum með skýra verkferla, gagnadrifnar skýrslur og öflug kerfi sem veita þér fulla yfirsýn.
Við höfum sterk sambönd við miðlana sjálfa og bjóðum þjónustu sem kostar ekkert aukalega, en skilar hámarks árangri.
Gagnadrifin nálgun
Við nýtum gögn úr raunheimum til að móta og aðlaga herferðir á réttum tíma. Þannig tryggjum við að hver birting og hvert innlegg vinni að sama markmiði — mælanlegum árangri.
Áreitið frá miðlum
Við tökum við áreiti frá öllum miðlum, vöndum valið og pössum að þú fáir það sem virkar – ekki bara það sem er í boði.
Birtingarstrategía
Við mótum skýra stefnu sem tengist markmiðum, markhópi og tímasetningum – þannig nýtist hver birting sem hluti af heild.
Bestu verðin
Við tryggjum bestu mögulegu kjör með góðum samskiptum við miðlana – og þjónustan okkar kostar ekkert aukalega.
Mælingar, plön & eftirfylgni
Við höfum yfirsýn, gerum plön og fylgjum eftir – með skýrum mælikvörðum, gagnadrifinni nálgun og reglulegri skýrslugerð.
Tól sem við notum
Við notum allskonar tól sem hjálpar okkur að mæla, halda utan um og taka betri ákvarðanir fyrir þitt birtingaplan.
Airdate
PúlsMedia
Data studio
Let’s Talk
Numbers showcase our success — see what we’ve achieved.
Launched Projects
Launching Impactful Digital Solutions
Audience Impacted
Connecting brands to their audience.
Client Happiness
Creating smiles with every delivery.
Proven Expertise
Expertise driving real success.
Útvarp
Umhverfisskilti
Prent
Sjónvarp
Vefmiðlar
📻 Útvarp
Dekkun: Nær til um 90% landsmanna á hverri viku.
Útvarp er einn öflugasti miðill landsins þegar kemur að tíðni og nánd.
Við hjálpum þér að velja stöð, tímabil og rödd sem talar beint til markhópsins — í bílnum, vinnunni og heima.
Fullkomið til að byggja upp vörumerkjavitund og styrkja endurtekningu skilaboða.
📺 Sjónvarp
Dekkun: Um 75–80% landsmanna sjá sjónvarpsauglýsingar vikulega.
Sjónvarp hefur einstakan slagkraft í að skapa tilfinningaleg tengsl og áreiðanleika.
Við nýtum gögn um áhorf og tíma dags til að tryggja að birtingarnar þínar nái hámarksáhrifum.
Hentar vel fyrir herferðir sem byggja vörumerki eða nýjar vörur.
📰 Dagblöð og prentmiðlar
Dekkun: Um 60% landsmanna lesa prentmiðla reglulega.
Prentmiðlar bjóða stöðugleika, trúverðugleika og mikla athygli.
Við veljum staðsetningar og stærðir sem tryggja að skilaboðin þín standi út í umhverfi þar sem fólk les í ró og næði.
Sterkur miðill fyrir traust, faglega ímynd og eldri markhópa.
🏙️ Billboard & skjábirtingar
Dekkun: Nær til yfir 70% höfuðborgarbúa daglega.
Stórir skjáir og útiborðar eru áhrifamikil leið til að byggja upp sýnileika og styrkja ímynd.
Við tryggjum rétta staðsetningu miðað við umferð, tíma og samhengi.
Fullkomið fyrir vörumerki sem vilja vera „á öllum vörum.“
🎙️ Hlaðvörp
Dekkun: Um 45% Íslendinga hlusta á hlaðvörp vikulega.
Hlaðvörp bjóða einstaka dýpt og tengsl við hlustandann.
Við finnum rétta þáttinn og umhverfið sem hentar vörunni þinni og vinnum með þáttastjórnendum til að tryggja náttúrulega framsetningu.
Virkar sérstaklega vel fyrir vörur sem krefjast útskýringa eða tengsla.
💻 Netborðar og stafrænar birtingar
Dekkun: Nær til 95% netsins á Íslandi.
Við nýtum gögn og mælingar í rauntíma til að tryggja að hver birting skili hámarksáhrifum.
Endurmarkaðssetning, aðlögun og skýr skýrsla tryggja að þú sjáir árangurinn strax.
Besti kosturinn fyrir nákvæma mælanleika, hraða og sérsniðna miðlun.
FAQS
Algengar spurningar um hefðbundnar birtingar
Hefðbundnar birtingar eru auglýsingar sem birtast á miðlum eins og útvarpi, sjónvarpi, prenti, billboardum, strætóskiltum, podcastum og fréttaveitum. Þær eru notaðar til að byggja upp ímynd, auka vitund og ná breiðum markhópi.
Stafræn birting (t.d. á Facebook, Google, TikTok) er oft mælanlegri og sveigjanlegri, en hefðbundin birting nær víðari hópi og byggir upp traust og ímynd yfir lengri tíma. Bestu herferðir nýta bæði.
Það fer eftir markhópnum, skilaboðunum og markmiðum. Við greinum markhópinn og mælum með miðlum sem skila mestum árangri fyrir þinn markað.
Útvarpsauglýsing er hljóðauglýsing sem spilast á ákveðnum stöðvum á tilteknum tímum. Við sjáum um allt ferlið — frá textagerð og upptöku til útsendingar.
Verðið fer eftir lengd auglýsingarinnar, stöðinni sem hún birtist á og hversu oft hún spilast. Við getum gert tilboð byggt á þínum markmiðum og fjárhagsramma.
Við fylgjumst með birtingum, smellum og heimsóknum á vefinn þinn — þannig færðu mælanleg gögn um árangur herferðarinnar.
Sumar birtingar, sérstaklega sjónvarp og umhverfisskilti, þarf að bóka með fyrirvara. Pláss eins og HM í handbolta, áramótaskaupið, aðrir vinsælir þættir, eða tímabil eins og Black Friday í nóvember, selst oft upp snemma. Við mælum með að hafa samband sem fyrst til að tryggja þína birtingastrategíu fái sín pláss.
Já! Það er algengur misskilningur að sjónvarpsauglýsingar séu aðeins fyrir stór fyrirtæki. Við getum framleitt stuttar, áhrifaríkar auglýsingar og valið tímabil eða stöðvar sem passa við fjárhagsáætlunina þína.
Auglýsingin er keyrð á ákveðnum rásum og tímum, byggt á áhorfi og markhóp. Við sjáum um kaup á birtingum, áætlanagerð og eftirfylgni.
Já, sérstaklega þegar markhópurinn er eldri eða þegar þú vilt byggja upp traust og ímynd. Prent birtist í viðurkenndum miðlum þar sem athygli lesenda er meiri.
Stærð, staðsetning í blaðinu og gæði hönnunar skipta miklu. Við sjáum um uppsetningu og afhendingu til viðkomandi miðils.
Verðið fer eftir staðsetningu, stærð og birtingartíma. Við getum fundið hentuga staði út frá markhópnum og áætlað kostnað.
Þú getur keypt auglýsingapláss þar sem stjórnandi les inn skilaboðin á sínum forsendum og með sínu sniði, þá ertu að "styrkja" þáttinn - en í dag er einnig hægt að kaupa auglýsingar í hlaðvörpum eins og útvarpsauglýsingu, þannig auglýsingin þín spilast yfir nokkra þætti yfir ákveðið tímabil, en lifir ekki með þættinum ef það væri t.d. hlustað á hann eftir einhver ár. Við hjálpum þér að velja rétta podcast miðað við markhópinn.
Já, oft er hægt að fylgjast með niðurhali og notkun afsláttarkóða eða vefslóða til að sjá árangur.





