Verkefni: Endurhönnun á vefborðum fyrir birtingarherferðir á Mbl.is og öðrum miðlum.
Áskorun:
Ferðaskrifstofur eru margar að keppa um athygli á netinu – sérstaklega í birtingum þar sem auglýsingaplássið er það sama og boðin svipuð. Tango Travel þurfti að skera sig úr og byggja upp sterkari sjónræna ásýnd á markaði þar sem „sól, sandur og tilboð“ eru ríkjandi.
Lausn:
Við hjá SALT endurhönnuðum vefborðana frá grunni með það markmið að láta vörumerkið sjálft njóta sín.
Logóið og punkturinn í því urðu miðpunktur hugmyndarinnar.
Auglýsingin hefst á logóinu og endar á logóinu – og þegar punkturinn opnast, breiðist hann út yfir borðann og myndar glugga inn í heim myndefnis og ævintýra.
Þar birtist fólk að njóta lífsins á ferðalögum – táknmynd fyrir alla þá áfangastaði sem Tango Travel býður upp á.
Niðurstaða:
Útkoman er einföld, áhrifarík og sjónræn auglýsingalausn sem vekur athygli og tengir áhorfandann beint við upplifunina – ekki bara tilboðið. Tango Travel – opnar þínar dyr út í heiminn.


