Á fallegum sumardegi fórum við í tökur fyrir Everdure — hágæða grillmerki sem hefur notið mikilla vinsælda meðal matgæðinga á Íslandi. Markmiðið var að fanga tilfinninguna fyrir sumarstemningunni, gæðunum og ástríðunni fyrir matargerð sem einkennir vörumerkið.
Við fengum stjörnukokkinn Hauk, eiganda Yuzu, með okkur í lið og hann reyndist sannur meistari bæði fyrir framan og aftan grillið. Hann miðlaði ástríðu sinni á einstakan hátt og grillaði algjörlega sturlaðan mat — sem við fengum svo að smakka eftir tökurnar.
Tökurnar gengu frábærlega og útkoman varð falleg og áferðarfalleg auglýsing fyrir Everdure. Nokkrum dögum eftir að auglýsingin fór í birtingu seldist upp lagerinn af Furnace grillunum.
Við tókum einnig upp efni fyrir ferðagrillið frá Everdure, sem bætir við fjölbreytileika í efnisbanka vörumerkisins og heldur áfram að styðja við söluna yfir sumarmánuðina.

