Heildræn umsjón með birtingum og samfélagsmiðlum, frá hefðbundnum miðlum yfir í stafræna.
Við framleiddum stutt myndbandaefni fyrir samfélagsmiðla, með sérstaka áherslu á TikTok og Instagram, og sáum um birtingar og dreifingu á öllum helstu miðlum. Efnið var unnið til að lifa bæði fyrir, á meðan og eftir viðburðinn.