Helvitis jolapizzan

Helvítis jólapizzan – Case frá Salt

Fyrir Eldofninn fengum við það skemmtilega verkefni að skapa alvöru „Helvítis“ jólastemningu í kringum sérblandaða jólapizzu ársins. Pizzan sjálf er ótrúlega bragðmikil – anda confit, ferskt grænmeti og Helvítis Eldpiparsultan sem gefur réttinum sitt einkenni og rétta hita.

Við hjá Salt unnum hugmyndavinnu, tón, texta og efni sem spegla karakterinn á bakvið Helvítis kokkinn: létt, óhefðbundið og skemmtilega óvægið. Lykilmarkmiðið var að láta bragðið, húmorinn og persónuleikann tala og skapa efni sem myndi bæði fá fólk til að brosa og langa í sneið.

Útkoman var lifandi og óformlegt jólaverkefni sem fór alla leið í anda vörumerkisins – óhefðbundið, skarpt og einstaklega lystaukandi.

Jolapizzan_billboard-mock
16 (1)
eldofninn-25-12-03-00025-INSTAGRAM_SIZE
eldofninn-25-12-03-00020-INSTAGRAM_SIZE
eldofninn-25-12-03-00033-INSTAGRAM_SIZE
eldofninn-25-12-05-00067-WEB_SIZE