Nítjánda er ný golfhermaaðstaða í Reykjavík sem sameinar íþrótt, afslöppun og skemmtun á einstakan hátt. Þar er ekki aðeins hægt að slá í gegnum bestu golfvelli heims – heldur líka spila á 12 Scolia píluspjöldum, æfa púttin á sérstöku púttsvæði, fylgjast með boltanum í beinni og njóta drykkja á vel útbúnum bar með bjór á dælu og léttvíni á glasi.
Í næsta húsi er Mathöll Höfða, og gestir geta pantað mat beint þaðan – rétturinn kemur beint að herminum, þannig að engin þörf er á að slá stopp í skemmtunina.
Við hjá [stofunafn] sáum um allt heildarútlit vörumerkisins, frá hugmynd að lokaverkefni. Markmiðið var að skapa lúxus og „country club“ stemningu með klassískum „old money“ blæ.
Verkið innihélt:
Lógóhönnun og vörumerkjastefnu
Grafískt efni fyrir samfélagsmiðla
Gluggamerkingar og drykkjarseðla
Hönnun og uppsetningu á heimasíðu með bókunar- og upplýsingakerfi
Útkoman er nútímaleg, stílhrein og hlýleg upplifun sem fangar anda golfklúbbsins – og gerir Nítjándu að staðnum sem allir vilja heimsækja, golfarar eða ekki.