Sjúkraliðafélag Íslands

Verkefni: Heildræn herferð til að auka áhuga ungs fólks á sjúkraliðanámi, efla ímynd sjúkraliðastéttarinnar og auka sýnileika hennar í íslensku samfélagi.


Bakgrunnur og markmið

Sjúkraliðafélag Íslands leitaði til SALT með það markmið að vekja áhuga ungs fólks á sjúkraliðanámi – sérstaklega drengja – og um leið efla vitund um mikilvægt hlutverk sjúkraliða í íslensku heilbrigðiskerfi.

Starf sjúkraliða er fjölbreytt, mannlegt og krefjandi, en oft á tíðum vanmetið. Herferðin átti því bæði að kynna námið sjálft og sýna hversu mikilvæg og áhrifamikil þessi stétt er fyrir samfélagið í heild.


Hugmyndin – Landsliðið

Kjarnahugmynd herferðarinnar var „Landsliðið“ – orðaleikur sem byggir á tengingunni milli sjúkraliða og landsliðs.

Hugmyndin setur sjúkraliða í hlutverk liðsheildar sem vinnur saman að einu sameiginlegu markmiði: að bæta líðan og velferð fólks. Líkt og íþróttalandslið stendur þetta lið saman í krefjandi aðstæðum og styður hvert annað – dag eftir dag.

Til að sýna breidd starfsins og mannlega þáttinn notuðum við hugmyndina í mismunandi samhengi:

  • Landsliðið í persónulegum samtölum

  • Landsliðið í krefjandi aðstæðum

  • Landsliðið í mikilvægum augnablikum

  • Landsliðið í hughreystingu

  • Landsliðið í hlýju

  • Landsliðið í skilningi

  • Landsliðið í hlustun

  • Landsliðið í aðhlynningu

  • Landsliðið í nærveru

  • Landsliðið í samskiptum

  • Landsliðið í nærhjúkrun

  • Landsliðið í seiglu

Þannig varð hugmyndin rammi utan um allt efnið og frásögnina – og undirstrikaði að sjúkraliðar eru lið sem samfélagið treystir á.


Framkvæmd

Við hjá SALT sáum um verkefnið frá hugmynd til birtingar: stefnumótun, efnisframleiðslu, vefhönnun og auglýsingaherferð.

Efnisframleiðsla

Við framleiddum röð myndbanda þar sem starfandi sjúkraliðar og sjúkraliðanemar segja frá reynslu sinni. Myndefnið var tekið í raunverulegu vinnuumhverfi þeirra – á vinnustöðum og í skóla – þar sem þau gengu með okkur í gegnum daginn sinn og sögðu frá því hvað starfið felur í sér, hvers vegna þau völdu námið og hvað gerir það gefandi.

Markmiðið var að sýna raunverulegt fólk og raunverulegar aðstæður – hlýjuna, fagmennskuna og seigluna sem einkennir starfið.

Auk þess fórum við í ljósmyndun sem nýttist í auglýsingar, samfélagsmiðla og á vef herferðarinnar.

Vefurinn – sjukralidi.is

Við hönnuðum og settum upp lendingarsíðuna sjukralidi.is, sem varð miðpunktur herferðarinnar.

Á síðunni má finna:

  • upplýsingar um sjúkraliðanámið

  • upplýsingar um átakið

  • algengar spurningar

  • upplýsingar um hvar og hvernig hægt er að sækja um

  • myndbönd og myndefni úr herferðinni

Síðan var hönnuð með einföldu og skýru notendaflæði til að auðvelda ungu fólki að kynna sér námið og taka næsta skref.

Birtingar og dreifing

Við mótuðum birtingarstrategíu og sáum um framkvæmd auglýsinga á helstu miðlum – þar á meðal samfélagsmiðlum, Google og vefmiðlum.

Allar birtingar vísuðu á sjukralidi.is, þar sem notendur gátu kynnt sér námið og fengið allar helstu upplýsingar á einum stað.


Athygli og útbreiðsla

Í tengslum við upphaf herferðarinnar var send út fréttatilkynning sem kynnti átakið og markmið þess – að efla vitund um mikilvægi sjúkraliðastarfsins og hvetja fleiri til að ganga í liðið.

Fréttatilkynningin var birt í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum Sjúkraliðafélags Íslands og kynnti hugmyndina og herferðina fyrir almenningi.


Niðurstaða

Herferðin Landsliðið setti sjúkraliðastéttina í nýtt ljós og lagði áherslu á mannlega þáttinn í starfinu – samstöðu, hlýju og seiglu.

Með því að sýna raunverulegt fólk í raunverulegum aðstæðum tókst að skapa sterka og trúverðuga frásögn sem vekur áhuga á náminu og undirstrikar mikilvægi stéttarinnar fyrir samfélagið.

Landsliðið – liðið sem heldur landinu gangandi.

SJÚKRALIÐAFÉLAG ÍSLANDS - KYNNING (5)
slfi-25-09-29-00033-WEB_SIZE
SLFI-LSH_2 (1)-03
SJÚKRALIÐAFÉLAG ÍSLANDS - KYNNING (6)
1