Verkefni: Heildræn herferð til að auka áhuga ungs fólks á sjúkraliðanámi, efla ímynd sjúkraliðastéttarinnar og auka sýnileika hennar í íslensku samfélagi.
Sjúkraliðafélag Íslands leitaði til SALT með það markmið að vekja áhuga ungs fólks á sjúkraliðanámi – sérstaklega drengja – og um leið efla vitund um mikilvægt hlutverk sjúkraliða í íslensku heilbrigðiskerfi.
Starf sjúkraliða er fjölbreytt, mannlegt og krefjandi, en oft á tíðum vanmetið. Herferðin átti því bæði að kynna námið sjálft og sýna hversu mikilvæg og áhrifamikil þessi stétt er fyrir samfélagið í heild.
Kjarnahugmynd herferðarinnar var „Landsliðið“ – orðaleikur sem byggir á tengingunni milli sjúkraliða og landsliðs.
Hugmyndin setur sjúkraliða í hlutverk liðsheildar sem vinnur saman að einu sameiginlegu markmiði: að bæta líðan og velferð fólks. Líkt og íþróttalandslið stendur þetta lið saman í krefjandi aðstæðum og styður hvert annað – dag eftir dag.
Til að sýna breidd starfsins og mannlega þáttinn notuðum við hugmyndina í mismunandi samhengi:
Þannig varð hugmyndin rammi utan um allt efnið og frásögnina – og undirstrikaði að sjúkraliðar eru lið sem samfélagið treystir á.
Við hjá SALT sáum um verkefnið frá hugmynd til birtingar: stefnumótun, efnisframleiðslu, vefhönnun og auglýsingaherferð.
Við framleiddum röð myndbanda þar sem starfandi sjúkraliðar og sjúkraliðanemar segja frá reynslu sinni. Myndefnið var tekið í raunverulegu vinnuumhverfi þeirra – á vinnustöðum og í skóla – þar sem þau gengu með okkur í gegnum daginn sinn og sögðu frá því hvað starfið felur í sér, hvers vegna þau völdu námið og hvað gerir það gefandi.
Markmiðið var að sýna raunverulegt fólk og raunverulegar aðstæður – hlýjuna, fagmennskuna og seigluna sem einkennir starfið.
Auk þess fórum við í ljósmyndun sem nýttist í auglýsingar, samfélagsmiðla og á vef herferðarinnar.
Við hönnuðum og settum upp lendingarsíðuna sjukralidi.is, sem varð miðpunktur herferðarinnar.
Á síðunni má finna:
Síðan var hönnuð með einföldu og skýru notendaflæði til að auðvelda ungu fólki að kynna sér námið og taka næsta skref.
Við mótuðum birtingarstrategíu og sáum um framkvæmd auglýsinga á helstu miðlum – þar á meðal samfélagsmiðlum, Google og vefmiðlum.
Allar birtingar vísuðu á sjukralidi.is, þar sem notendur gátu kynnt sér námið og fengið allar helstu upplýsingar á einum stað.
Í tengslum við upphaf herferðarinnar var send út fréttatilkynning sem kynnti átakið og markmið þess – að efla vitund um mikilvægi sjúkraliðastarfsins og hvetja fleiri til að ganga í liðið.
Fréttatilkynningin var birt í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum Sjúkraliðafélags Íslands og kynnti hugmyndina og herferðina fyrir almenningi.
Herferðin Landsliðið setti sjúkraliðastéttina í nýtt ljós og lagði áherslu á mannlega þáttinn í starfinu – samstöðu, hlýju og seiglu.
Með því að sýna raunverulegt fólk í raunverulegum aðstæðum tókst að skapa sterka og trúverðuga frásögn sem vekur áhuga á náminu og undirstrikar mikilvægi stéttarinnar fyrir samfélagið.
Landsliðið – liðið sem heldur landinu gangandi.






