Verkefni: Endurhönnun á vefborðum fyrir birtingarherferðir á Mbl.is og öðrum miðlum.
Áskorun:
Ferðaskrifstofur eru margar að keppa um athygli á netinu – sérstaklega í birtingum þar sem auglýsingaplássið er það sama og boðin svipuð. Tango Travel þurfti að skera sig úr og byggja upp sterkari sjónræna ásýnd á markaði þar sem „sól, sandur og tilboð“ eru ríkjandi.
Lausn:
Við hjá SALT endurhönnuðum vefborðana frá grunni með það markmið að láta vörumerkið sjálft njóta sín.
Útkoman er einföld, áhrifarík og sjónræn auglýsingalausn sem vekur athygli og tengir áhorfandann beint við upplifunina – ekki bara tilboðið. Hugmyndin byggir undir kjarnaskilaboð Tango Travel:
Tango Travel – opnar þínar dyr út í heiminn.


