Fyrir Dag verkfræðinnar sá SALT um framleiðslu og miðlun efnis með það að markmiði að byggja upp sýnileika fyrir viðburðinn, kynna dagskrána og skapa lifandi umfjöllun í kringum daginn sjálfan.
Í aðdraganda viðburðarins framleiddum við myndbönd fyrir samfélagsmiðla þar sem fyrirlesarar dagsins voru kynntir og sáum um birtingarherferð þvert á miðla. Þar fléttuðum við saman hefðbundnar og stafrænar birtingar til að ná til réttra markhópa á ólíkum snertiflötum.
Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við Inga Kristján hönnuð, sem mótaði útlit og ásýnd verkefnisins. Hönnunin og birtingaplanið voru unnin saman frá upphafi svo skilaboð, efni og miðlun mynduðu eina sterka heild.
Á Degi verkfræðinnar var SALT einnig á staðnum og framleiddi lifandi efni fyrir samfélagsmiðla – stemningsmyndbönd, viðtöl við gesti og annað efni sem gaf fólki innsýn í viðburðinn á meðan á honum stóð.
Fyrir viðburð tókum við jafnframt viðtal við HS Orku, vinningshafa Teningsins.
Frá uppbyggingu og kynningu fyrir viðburðinn, yfir í birtingar, framleiðslu og lifandi efni á staðnum – SALT sá um að Dagur verkfræðinnar væri sýnilegur fyrir, á meðan og eftir að dagurinn fór fram.

